Aða Studio dregur nafn sitt af öðuskelinni sem finna má við strendur Íslands.
Aða Studio var stofnað í Reykjavík af mæðgum með bakgrunn í tónlist. Stúdíóið sameinar áhuga þeirra á handverki og íslenskri náttúru. Skeljar og steinar eru varðveittir, fá framhaldslíf í handgerðum sápum eða í silfruðu skarti og fá þannig dýpri tengingu inn í daglegt líf okkar.
Þess fyrir utan býður Aða studio upp á úrval af sérvöldum notuðum fylgihlutum og borðbúnaði með áherslu á gæði, karakter og tímalausa fegurð.
Aða Studio er vettvangur fyrir muni sem vekja forvitni — fundna, mótaða og varðveitta.